Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

27.1.2010

Málþing um fjármögnun háskóla 29. janúar 2010

Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna.

25.1.2010

Stefna Vísinda- og tækniráðs 2010-2012

Vísinda- og tækniráð samþykkti nýja stefnu í vísinda- og nýsköpunarmálum á fundi sínum 18. desember 2009. Ráðið hóf undirbúning við mótun nýrrar stefnu haustið 2008 og tók mið af breyttum forsendum fyrir efnahag þjóðarinnar í vinnunni. Nýtt Vísinda- og tækniráð var skipað vorið 2009 og tók það við mótuðum tillögum frá gamla ráðinu. Nýja ráðið vann áfram með tillögurnar og samþykkti nýja stefnu á desemberfundinum.

Stefnuna má finna hér.

7.12.2009

Málþing um hlutverk háskóla 11. des kl. 13:00

Hlutverk háskóla: Málfundur 11. desember kl. 13 til 16 í Norræna húsinu

Föstudaginn 11. desember nk. verður annað málþing um háskólamál og rannsóknir sem mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir.

7.12.2009

Norrænar öndvegisrannsóknir - loftslag, umhverfi og orka

Öndvegisrannsóknaráætlunin (Topforskningsinitiativet- TFI) er samnorrænt átak sem snýr að loftslagi, umhverfi og orku. Markmiðið er að með því að gera bæði rannsóknastofnanir og atvinnulíf þátttakendur, og með því að tengja þá bestu á sínu sviði saman, geti Norðurlöndin lagt sitt af mörkum við að leysa loftlagsvanda heimsins. Nokkrir umsóknarfrestir eru í byrjun árs.

Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd