Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

Vísinda- og tækniráð
Framtíðarsýn 2020

Á grundvelli stefnu Vísinda- og tækniráðs 2006-2009 hafa vísindanefnd og tækninefnd ráðsins hrint úr vör greiningu á framtíðarsýn fyrir afmörkuð áherslusvið íslensks þjóðfélags þar sem vísindi, tækni og samfélag geta fléttast saman og skilað þjóðinni enn meiri ávinningi. Í febrúar tóku 90 manns úr ýmsum þjóðfélagshópum þátt í opinni hugarflugsráðstefnu um hvaða svið geti verið að ræða. Hafa nefndirnar unnið úr niðurstöðum ráðstefnunnar og orðið ásáttar um að flokka hugmyndirnar undir fjórar  meginyfirskriftir:

  1. Náttúruauðlindir, umhverfi og sjálfbær nýting 
  2. Heilsa, heilbrigði og hollusta
  3. Styrkur smáþjóðar – menningar-, samfélags- og efnahagslegir innviðir
  4. Viðskipti, fjármögnun og nýsköpun

Tilgangurinn með þessu verkefni er að stuðla að aukinni samvinnu milli vísinda- og tæknisamfélags og hagsmunaaðila - þ.m.t. fyrirtækja, háskóla, rannsóknastofnana, opinberra aðila, félagasamtaka og einstakra þjóðfélagshópa, svo og stjórnvalda. Þessir aðilar geta treyst stöðu sína með virkara samstarfi, ýtt undir nýsköpun í atvinnulífi og opinberri þjónustu og um leið eflt vísinda- og tæknirannsóknir hér á landi.

Hvatningarverðlaun í 20 ár – Framtíðarsýn 2020
Erindi og glærur á Rannsóknaþingi 6. júní 2007
Þingsetning Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
Kynning á framsýniverkefni Vísinda- og tækniráðs Hallgrímur Jónasson, formaður tækninefndar
Framtíðarsýn verðlaunahafa hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs:
Náttúruauðlindir, umhverfi og sjálfbær nýting
Áslaug Helgadóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, og Gunnar Stefánsson, Háskóla Íslands
Heilsa, heilbrigði og hollusta
Eiríkur Steingrímsson og Ingibjörg Harðardóttir, Háskóla Íslands
Styrkur smáþjóðar - menningar-, samfélags- og efnahagslegir innviðir
Svanhildur Óskarsdóttir, Orri Vésteinsson og Valur Ingimundarson, Háskóla Íslands
Viðskipti, fjármögnun og nýsköpun
Hilmar Janusson, Össuri og Hörður Arnarson, Marel

Nefndarsíður  
1. Náttúruauðlindir, umhverfi og sjálfbær nýting   
2. Heilsa, heilbrigði og hollusta  
3. Styrkur smáþjóðar – menningar-, samfélags- og efnahagslegir innviðir  
4. Viðskipti, fjármögnun og nýsköpun  
   

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd