VT fréttir
23.11.2006
30. samfundur
30. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar miðvikudaginn 20. september, 2006, kl. 14-16:40.
Undirbúningur við European Technology Platforms samstarf, aðallega í höndum fyrirtækja (SI og SA) í samstarfi við stofnanir, komið skammt á veg. Sagt frá þátttöku í OECD fundi um heilbrigðistækni.
23.11.2006
29. samfundur
29. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar miðvikudaginn 21. júní, 2006, kl. 14-17
Gestir fundarins, Þorvaldur Finnbjörnsson, Rannís og Jón Steindór Valdimarsson, Samtökum iðnaðarins kynntu skattalega hvata til rannsókna og þróunar hjá fyrirtækjum í Noregi, s.k. SkatteFunn. .
23.11.2006
57. fundur vísindanefndar
Vísindanefnd: 57. fundur 4. október, 2006 kl. 14-16
Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis sagði frá skilagrein nefndar um fýsileika sameiningar Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands. Rætt var um tillögur að skipan í fagráð Rannsóknasjóðs og ákveðið að formaður gangi frá skipaninni.
23.11.2006
56. fundur vísindanefndar
Vísindanefnd: 56. fundur 6. september, 2006 kl. 14-16
Sagt var frá reglugerðarvinnu vegna nýrra háskólalaga, endurskoðun frumvarps um Nýsköpunarmiðstöð og skipan nefndar til að skoða uppbyggingu þekkingarkjarna í Vatnsmýri









