VT fréttir
28.2.2006
Nýsköpunarþing 9. mars
Hver er nýsköpunin í útrásinni? er yfirskrift Nýsköpunarþings Rannís og Útflutningsráðs sem haldið verður fimmtudaginn 9. mars nk. kl. 8.00-10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Á þinginu verða veitt Nýsköpunarverðlaun fyrir árið 2006.
21.2.2006
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs - frestur til 15. mars
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Tilnefningafrestur er til 15. mars.
21.2.2006
Ímyndir norðursins á ráðstefnu Reykjavíkurakademíunnar
ReykjavíkurAkademían, í samstarfi við Vetrarhátið Reykjavíkurborgar, kynnir alþjóðlega ráðstefnu undir yfirskriftinni ÍMYNDIR NORÐURSINS, sem haldin verður í Iðnó dagana 24.-26 febrúar 2006.
Ráðstefnan er alþjóðleg og ráðstefnutungumálið er enska. Boðið er upp upp á um 75 erindi í 12 málstofum, þar sem fræðimenn úr hug- og félagsvísindum fjalla um norðrið með því að kanna hina ýmsu þætti sem hverfast um ímyndarsköpun, sjálfsmyndir, framsetningu norðursins, og sambandið þar á milli. Meirihluti fyrirlesara kemur erlendis frá og er þetta stærsti viðburðurinn sem hefur verið skipulagður á Íslandi um þetta viðfangsefni.
9.2.2006
Hugur, hegðun og erfðir á ráðstefnu EMBO/EMBL
EMBL/EMBO efnir til ráðstefnu um vísindi og samfélag í Heidelberg í Þýskalandi 3. og 4. nóvember í haust. Viðfangsefni ráðstefnunnar er hugur, hegðun og erfðir.
Framfarir í lífvísindum og lyfjameðferð eru slíkar að vísindasamfélagið stendur frammi fyrir fjölmörgum áleitnum siðferðilegum álitamálum sem rædd verða á ráðstefnunni.
8.2.2006
Rannsóknasjóður úthlutar yfir 500 m.kr.
Hafliði P. Gíslason formaður stjórnar Rannsóknasjóðs kynnti úthlutun sjóðsins á blaðamannafundi í dag. Nýir verkefnisstyrkir eru 65, þrír nýir öndvegisstyrkir og fimm rannsóknastöðustyrkir.









