Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

VT fréttir

9.3.2006

Stjörnu - Oddi hlýtur nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráð

Sigmar Guðbjörnsson framkvæmdastjóri Stjörnu - Odda og eiginkona hans Jóhanna Ástvaldsdóttir veittu í morgun viðtöku nýsköpunarverðlaunum Rannís og Útflutningsráðs. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin.

7.3.2006

Málþing um mótun vísinda- og tæknistefnu 2006 - 2009

Vísinda- og tækniráð boðar til málþings um mótun vísinda- og tæknistefnu 2006 - 2009 þriðjudaginn 14. mars kl. 13:00 á Hótel Loftleiðum.

Á málþinginu verða kynnt drög að stefnumótun Vísinda- og tækniráðs. Framsögu flytja Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Gunnar Páll Pálsson formaður VR og Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar Háskólans í Reykjavík.

3.3.2006

Heilbrigðisstefna til framtíðar- á hvaða leið erum við?

Heilbrigðisstefna til framtíðar- á hvaða leið erum við? er yfirskrift opins kynningar- og umræðufundar, sem haldinn verður föstudaginn 10. mars nk. kl. 14.00-16.30/17.00 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.

Tilefni fundarins eru nýjar niðurstöður tveggja nefnda sem báðar fjalla um þau grundvallaratriði og lagaramma sem íslensku heilbrigðiskerfi er ætlað að mótast af á komandi árum. Fundurinn sem fjalla mun um þau grundvallaratriði hefst með ávarpi heilbrigðisráðherra Sivjar Friðleifsdóttur.



Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra