Dr. Agnar Helgason mannfræðingur veitti í morgun viðtöku hvatningarverðlaunum Vísinda- og tækniráðs úr hendi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra og formanns ráðsins.
Stjórn Tækniþróunarsjóðs samþykkti að veita 19 verkefnum stuðning fyrir samtals 150 m. kr. Heildarvelta verkefnanna 19 er um 380 m.kr.
Alls bárust 61 umsókn um stuðning og sótt var um 895 m.kr.
Stjórn sjóðsins samþykkti jafnframt stuðning við 24 framhaldsverkefni og fengu þau samtals 140 m.kr.
RANNÍS boðar til Rannóknarþings 2006 í samstarfi við ráðuneyti menntamála og iðnaðar miðvikudaginn 31. maí kl. 9.00 – 11.20 á Grand Hótel. Yfirskrift þingsins er Næsti kafli vísinda og nýsköpunar á Íslandi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur þingið.
Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri Promens og Andri Snær Magnason rithföundur flytja erindi.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir hvatningarverðlaun ráðsins.
27. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar þriðjudaginn 11. apríl, 2006, kl. 9-10:30
Þetta var fyrsti fundur nefndanna í nýskipuðu ráði tímabilsins 2006-2009 og voru lagðar fram tillögur að skiptingu aðalmanna í Vísinda- og tækniráði í vísindanefnd annars vegar og tækninefnd hins vegar. Formenn nefndanna og ritari Vísinda- og tækniráðs fengu í lok fundarins umboð til að ganga frá lokagerð skipunar í nefndir.
Vísindanefnd: 50. fundur 19. apríl, 2006 kl. 14-17
Ákveðið var verklag við umfjöllun nefndarinnar á stefnumótun Vísinda- og tækniráðs 2006-2009 og lagður fram verkefnalisti sem varðar stefnuatriðin. Vísinda- og tækniráði barst erindi frá NordForsk, sem lagt var fram á sameiginlegum fundi nefndanna í síðustu viku. Bréfi nefndanna til Nordisk Forskningspolitisk Rad árið 2004 var dreift. Ákveðið var að fresta umræðu þar til eftir næsta fund stjórnar NordForsk. Rætt var um tilhögun Rannsóknaþings Vísinda- og tækniráðs sem haldið verður í maí og ákveðið að kynningarnefnd ráðsins ásamt formönnum nefndanna gangi frá því. Minnt var á að nefndin þarf að huga að skipan í stjórn Rannsóknasjóðs og í stjórn NordForsk.
Vísindanefnd: 49. fundur 15. mars, 2006 kl. 14-17
Staðfest var að fundur Vísinda- og tækniráðs verður haldinn 31. mars kl. 11 í Ráðherrabústaðnum. Til umræðu var stefnumótun Vísinda- og tækniráðs 2006-2009 í ljósi Málþings 14. mars og farið yfir helstu atriði sem þar komu fram, en almenn ánægja virtist vera um drögin sem þar voru kynnt. Rætt var um reglur um doktorsnám.
Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd