VT fréttir
27.6.2006
Ný stjórn Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs
Menntamálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs, sbr. 4. gr. laga nr. 3/2003. Skipunartími er sami og Vísinda- og tækniráðs 2006-2009.
6.6.2006
Vísinda- og tæknistefna 2006 -2009 samþykkt
Vísinda- og tækniráð samþykkti vísinda- og tæknistefnu til ársins 2009 á fundi sínum 1. júní.
Undanfarin þrjú ár hefur Vísinda- og tækniráð lagt mesta áherslu á innviði og skipulagsmál rannsóknarstarfseminnar, eflingu háskólanna sem rannsóknarstofnana og eflingu samkeppnissjóða og samstillingu í starfsháttum þeirra. Árangur starfsins birtist m.a. í tvöföldun ráðstöfunarfjár samkeppnissjóða og umfangsmikilli nýsköpun í skipan rannsóknarstofnana og háskóla.









