Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

VT fréttir

29.8.2006

54. fundur vísindanefndar

Vísindanefnd: 54. fundur 28. júní, 2006 kl. 14-16
Formaður greindi frá því að stjórn Rannsóknasjóðs hafi verið skipuð samkvæmt tillögu nefndarinnar.

29.8.2006

53. fundur vísindanefndar

Vísindanefnd: 53. fundur 21. júní, 2006 kl. 13:30-14
Eina málið á dagskrá var afgreiðsla tilnefninga í stjórn Rannsóknasjóðs 2006-2009.

29.8.2006

52. fundur vísindanefndar

Vísindanefnd: 52. fundur 7. júní, 2006 kl. 14-16
Sagt frá fyrirhuguðum fundi með Sean McCarthy, írskum ráðgjafa,  5. júlí um mótun stefnu gagnvart sókn í 7. rammaáætlun ESB og fundarmönnum boðið á þann fund. Rætt var um tilnefningar í stjórn Rannsóknasjóðs og úthlutunarstefnu sjóðsins, sem verður afgreidd á fundi nefndarinnar 28. júní. Ákveðið var að funda um samstarf sjóðanna á komandi hausti um leiðir til að samræma starfshætti  sjóðanna til að skapa samfellu í samræmi við ályktanir Vísinda- og tækniráðs.

29.8.2006

51. fundur vísindanefndar

Vísindanefnd: 51. fundur 2. maí, 2006 kl. 14-16
Formaður tækninefndar sagði frá umsögn tækninefndar um frumvarp til laga um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og tækniþróun. Staðfest var að fundur Vísinda- og tækniráðs verður haldinn 1. júní kl. 14-16, kynningarfundur RANNÍS og Impru 9. maí og að Rannsóknaþing verður haldið 31. maí. Farið var yfir drög að stefnumótun ráðsins til ársins 2009. Vakin var athygli á því að á Norðurlöndunum er verið að ræða fyrirkomulag útstöðva EMBL.



Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra