Menntarannsóknir, menningararfurinn og nýsköpun sportafyrirtækja eru meðal áhersluatriða í ályktun Vísinda- og tækniráðs sem samþykkt var á haustfundi ráðsins 18. desember.
Innviðir, forvarnir og heilbrigði eru önnur atriði sem ályktunin hefur í forgrunni auk rannsókna á nýtingu náttúruauðlinda og framgangs skapandi greina.
Kristján Leósson eðlisverkfræðingur tók við hvatningarverðlaunum Vísinda- og tækniráðs úr hendi Geirs H. Haarde formanns ráðsins á Rannsóknaþingi sem haldið var á Grand hótel.
NordForsk kynnir þrjá nýja styrkjaflokka á sviði stofnfrumurannsókna, innviða rannsókna og samráðsvettvanga norrænna vísindamanna og fjármögnunaraðila.
Stjórn Tækniþróunarsjóðs ákvað á fundi 30. apríl sl. að bjóða verkefnisstjórum 19 umsókna til samninga um stuðning. Fjöldi umsókna að þessu sinni var 62. Starfsmenn RANNÍS munu boða verkefnisstjórana hvern um sig á samningafund á komandi dögum.
Að frumkvæði Vísinda- og tækniráðs hefur farið fram úttekt á fyrsta starfstímabili ráðsins 2003-2006. Meginmarkmið með úttekinni var að leiða í ljós áhrif og árangur af stofnun Vísinda- og tækniráðs og laga um stuðning við vísindarannsóknir, tækniþróun og nýsköpun sem tóku gildi vorið 2003. Jafnframt að fá mat á því hvernig einstök stefnumið Vísinda- og tækniráðs hafa náð fram að ganga og hvað betur má fara í starfsemi þess. Mats- og greiningarsvið menntamálaráðuneytis hafði umsjón úttektinni.
Umsóknir til Tækjasjóðs þessu sinni voru alls 62. Stjórn Tækjasjóðs samþykkti á fundi sínum 23. apríl 2007 að ganga til samninga við eftirfarandi 48 verkefni. Samtals er úthlutað 174,3 millj.kr.
Föstudaginn 30. mars næstkomandi verður haldið málþing um Vötn og vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu – ástand og horfur á Hótel Loftleiðum. Málþingið hefst kl. 8:30 með setningarræðu Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra.
Vísindamenn við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands og Landspítala háskólasjúkrahús boða til málþings í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 29. mars kl. 14:00., þar sem rætt verður hvernig beri að útdeila því fé sem veitt er til vísindarannsókna.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra afhenti fyrirtækinu Hafmynd efh. Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs í morgun. Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunarþingi og veitti þeim viðtöku Torfi Þórhallsson framkvæmdastjóri.
Rannís og Háskóli Íslands boða til hádegisfundar þriðjudaginn 20. febrúar kl. 12:15 í Hátíðasal Háskólans í Aðalbyggingu. Liisa Hakamies-Blomqvist, forstöðumaður NordForsk kynnir starfsemi stofnunarinnar og þau margvíslegu tækifæri til rannsóknastyrkja sem bjóðast í norrænu vísindasamstarfi. Hún og þrír ráðgjafar frá NordForsk, Susanna Sepponen, Kristin Oxley og Maria Nilsson, munu svara fyrirspurnum og tækifæri gefst til að hitta þær að loknum fundi til frekara skrafs.
Vísindanefnd: 60. fundur 17. janúar, 2007 kl. 14-16
Ágúst H. Ingþórsson sagði frá vinnu við úttekt á störfum Vísinda- og tækniráðs 2003-2006. Hellen Gunnarsdóttir sagði frá samningi ráðuneytisins við HÍ, þar sem tekið er tillit til stefnu Vísinda- og tækniráðs í mörgum skilmálanna sem þar eru settir.
Vísindanefnd: 59. fundur 29. nóvember, 2006 kl. 14-16
Rætt var um ráðstefnu forsvarsmanna í upplýsinga- og samskiptatækni sem ESB og Finnar boðuðu til í Helsinki í nóvember.
NordForsk hefur næstu þrjú árin um einn milljarð íslenskra króna til ráðstöfunar í norrænt vísindasamstarf í öllum greinum vísinda. Samstarfsnet, námskeið fyrir leiðbeinendur doktorsnema og þátttaka í framhaldsnámskeiðum eru meðal styrkjaforma.
Guðrún Nordal formaður stjórnar Rannsóknasjóðs kynnti helstu kennitölur sjóðsins vegna úthlutunar í ár á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í morgun. Fimm verkefni voru kynnt sérstaklega og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ávarpaði fundinn.
33. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar
miðvikudaginn 6. desember, 2006, kl. 14-17
Upplýst var að Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar, hefur verið skipuð fulltrúi Íslands í NordForsk frá og með síðustu mánaðarmótum.
32. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar
miðvikudaginn 15. nóvember, 2006, kl. 14-17
Framsýniáætlun Finna kynnt og efnisyfirliti úr skýrslunni Finnsight 2015 dreift til upplýsinga. Greint frá því að úthlutun úr Tækniþróunarsjóði er lokið.
31. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar
fimmtudaginn 19. október, 2006, kl. 14-16:30
Sagt var frá fundi norrænu vísindasiðanefndarinnar 15.-16. október og frá ráðstefnunni „Investing in research and innovation“ sem haldin var í Kaupmannahöfn 16.-18. október.
28. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar
miðvikudaginn 17. maí, 2006, kl. 14-17
Rætt var um viðfangsefni framundan, m.a. fjárveitingar til markáætlunar vegna seinni hluta hennar og að mikilvægt sé að tryggja a.m.k. kaupmátt sjóða og fyrirheit um aukin framlög til þeirra og fjármögnun þátttöku í alþjóðasamstarfi
Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd