Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

Hafmynd hlýtur nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs

22.2.2007

Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra afhenti fyrirtækinu Hafmynd efh. Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs í morgun. Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunarþingi og veitti þeim viðtöku Torfi Þórhallsson framkvæmdastjóri.

Opinn fundur um NordForsk í Háskóla Íslands

19.2.2007

Rannís og Háskóli Íslands boða til hádegisfundar þriðjudaginn 20. febrúar kl. 12:15 í Hátíðasal Háskólans í Aðalbyggingu. Liisa Hakamies-Blomqvist, forstöðumaður NordForsk kynnir starfsemi stofnunarinnar og þau margvíslegu tækifæri til rannsóknastyrkja sem bjóðast í norrænu vísindasamstarfi. Hún og þrír ráðgjafar frá NordForsk, Susanna Sepponen, Kristin Oxley og Maria Nilsson, munu svara fyrirspurnum og tækifæri gefst til að hitta þær að loknum fundi til frekara skrafs.

60. fundur vísindanefndar

12.2.2007

Vísindanefnd: 60. fundur 17. janúar, 2007 kl. 14-16
Ágúst H. Ingþórsson sagði frá vinnu við úttekt á störfum Vísinda- og tækniráðs 2003-2006. Hellen Gunnarsdóttir sagði frá samningi ráðuneytisins við HÍ, þar sem tekið er tillit til stefnu Vísinda- og tækniráðs í mörgum skilmálanna sem þar eru settir.

59. fundur vísindanefndar

7.2.2007

Vísindanefnd: 59. fundur 29. nóvember, 2006 kl. 14-16
Rætt var um ráðstefnu forsvarsmanna í upplýsinga- og samskiptatækni sem ESB og Finnar boðuðu til í Helsinki í nóvember.

Einn milljarður í norrænt samtarf - NordForsk

7.2.2007

NordForsk hefur næstu þrjú árin um einn milljarð íslenskra króna til ráðstöfunar í norrænt vísindasamstarf í öllum greinum vísinda. Samstarfsnet, námskeið fyrir leiðbeinendur doktorsnema og þátttaka í framhaldsnámskeiðum eru meðal styrkjaforma.

Blaðamannafundur Rannsóknasjóðs

6.2.2007

Guðrún Nordal formaður stjórnar Rannsóknasjóðs kynnti helstu kennitölur sjóðsins vegna úthlutunar í ár á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í morgun. Fimm verkefni voru kynnt sérstaklega og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ávarpaði fundinn.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd