Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

VT fréttir

31.3.2008

80 m.kr. styrkir verða í boði - starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs

Föstudaginn 4. apríl munu starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs auglýsa eftir hugmyndum að öndvegissetrum. Nokkrar hugmyndir verða valdar og forsvarsmönnum þeirra boðið að senda inn fullbúnar umsóknir í október 2008.  
Í boði verða 2 til 4 styrkir til allt að 7 ára og getur hver styrkur numið allt að 80 milljónum króna á ári. Samstarf háskóla, stofnana og fyrirtækja er skilyrði fyrir styrkveitingu sem og samstarf við erlenda aðila. Hugmyndir skulu taka mið af stefnu og áherslum sem Vísinda- og tækniráð samþykkti á fundi 18. desember 2007, sjá hér.

Nánari upplýsingar verða birtar í auglýsingu föstudaginn 4. apríl og frestur til að skila hugmyndum rennur út 9. maí.

 



Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra