Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

VT fréttir

14.4.2008

Kynning á markáćtlun um öndvegissetur og klasa

Um hundrað manns mættu á kynningu Rannís og Impru á Hótel Sögu á nýrri markáætlun Vísinda- og tækniráðs um öndvegissetur og klasa.

9.4.2008

Markáćtlun 2009-2015: Kynning á Hótel Sögu, mánudaginn 14. apríl kl. 9:00 til 10:30

 Ný markáætlun á vegum Vísinda- og tækniráðs hefur göngu sína árið 2009. Auglýst hefur verið eftir hugmyndum að öndvegissetrum og rannsóknaklösum. Frestur til að skila hugmyndum rennur út þriðjudaginn 13. maí.

Mánudaginn 14. apríl standa Rannís og Impra fyrir kynningu á markáætluninni á Hótel Sögu frá klukkan 9 til 10:30. Morgunverður í boði. Kynningin fer fram í Harvard (gamla Ársal).

Kynningin er öllum opin en þátttakendur skrái sig með tölvupósti til: rannis@rannis.is

4.4.2008

Markáćtlun 2009 til 2015

Starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs auglýsa eftir hugmyndum að öndvegissetrum og rannsóknaklösum. Í boði eru styrkir upp á allt að 80 milljónir króna á ári í að hámarki 7 ár. Hugmyndum skal skila á skrifstofu Rannís fyrir klukkan 16 þriðjudaginn 13. maí. Þær mega ekki vera lengri en 8 blaðsíður. Sjá auglýsingu hér og lýsingu á áætlun hér.

3.4.2008

Nýr forstöđumađur Rannís

Hans Kristján Guðmundsson hefur látið af störfum sem forstöðumaður Rannís. Menntamálaráðherra hefur skipað Hallgrím Jónasson, framkvæmdastjóra hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem forstöðumann Rannsóknamiðstöðvar Íslands.



Stjórnborđ

Fara á forsíđu Minni leturstćrđ Stćrri leturstćrđ Senda síđu Prenta síđu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tćkniráđ mótar opinbera stefnu í vísindum og tćkni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra