Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

VT fréttir

28.5.2008

Ari Kristinn hlýtur hvatningarverðlaunin

Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs fyrir árið 2008 hlaut dr. Ari Kristinn Jónsson tölvunarfræðingur og deildarforseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Geir H. Haarde forsætisráðherra afhenti verðlaunin á Rannsóknaþingi sem haldið var á  Grand Hótel 27. maí.

19.5.2008

Rannsóknaþing 27. maí - rannsóknir í fyrirtækjum

Þriðjudaginn 27. maí kl. 8:30-11:10 á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi, Sigtúni 38

Alþjóðlegar samanburðarmælingar sýna að Íslendingar hafa dregist aftur úr í nýsköpunar- og þróunarstarfi í atvinnulífinu á undanförnum árum og er brýnt að auka hvata til að snúa þeirri þróun við. Í fámennu landi er mikilvægt að sameina kraftana. Vísinda- og tækniráð hefur í framtíðarsýn sinni til 2020 m.a. lagt áherslu á virkt samstarf fyrirtækja, háskóla og stofnana í rannsóknum, nýsköpun og þróunarstarfi. Öflugar rannsóknir eru undirstaða þekkingarþjóðfélagsins og brýnt að hvetja sem flest fyrirtæki til þess að þær verði reglulegur þáttur í starfsemi þeirra.

13.5.2008

Rannsóknaþing 27. maí helgað rannsóknum í fyrirtækjum

Rannsóknaþing verður haldið á Grand hótel þann 27. maí kl. 8:30. Rannsóknir í fyrirtækjum er yfirskrift þingsins.



Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra