Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

Flestar markáætlunarhugmyndir á heilbrigðissviði

3.7.2008

Flestar þeirra 82 hugmynda sem bárust að markáætlun voru á heilbrigðissviði eða 30. Sviðin náttúruauðlindir og innviðir samfélagsins var hvort um sig með 12 hugmyndir og önnur svið með færri.
Sumar hugmyndanna náðu yfir fleiri en eitt svið. Sjá yfirlit yfir innlendar stofnanir sem standa á bak við hugmyndirnar.

Tíu hugmyndir fá umsóknarstyrk í markáætlun

1.7.2008

Tíu hugmyndir fá styrk úr markáætlun 2009 - 2015 til að skila fullbúinni umsókn í október næstkomandi. Markáætlunin var auglýst í apríl síðastliðnum og var beðið um hugmyndir að öndvegissetrum og rannsóknaklösum á þeim sviðum sem fjallað er um í ályktun Vísinda- og tækniráðs frá því í desember 2007. Alls bárust 82 hugmyndir.

Starfshópur á vegum Vísinda- og tækniráðs valdi tíu hugmyndir og tók mið af stefnu ráðsins og þeim viðmiðunum sem nefnd eru í lýsingu á markáætluninni. Lokaniðurstaða var kynnt á fundi vísindanefndar og tækninefndar 24. júní síðastliðinn.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd