Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

VT fréttir

7.12.2009

Málţing um hlutverk háskóla 11. des kl. 13:00

Hlutverk háskóla: Málfundur 11. desember kl. 13 til 16 í Norræna húsinu

Föstudaginn 11. desember nk. verður annað málþing um háskólamál og rannsóknir sem mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir.

7.12.2009

Norrćnar öndvegisrannsóknir - loftslag, umhverfi og orka

Öndvegisrannsóknaráætlunin (Topforskningsinitiativet- TFI) er samnorrænt átak sem snýr að loftslagi, umhverfi og orku. Markmiðið er að með því að gera bæði rannsóknastofnanir og atvinnulíf þátttakendur, og með því að tengja þá bestu á sínu sviði saman, geti Norðurlöndin lagt sitt af mörkum við að leysa loftlagsvanda heimsins. Nokkrir umsóknarfrestir eru í byrjun árs.

23.11.2009

Málfundir um háskólamál og rannsóknir 26. nóv og 27. nóv

Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna. Markmiðið er að vinna að sameiginlegum skilningi á aðstæðum háskóla og rannsóknastofnana í samfélagi okkar og móta sýn um uppbyggingu og samstarf menntunar og rannsókna í landinu. Fimmtudaginn 26. nóvember er hádegisfyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu. Föstudaginn 27. nóvember er fundur í Norræna húsinu um gæðaeftirlit kennslu og rannsókna í háskólum.

21.10.2009

Ţjóđarspegill í tíunda sinn

Ţjóðarspegillinn X 2009, tíunda félagsvísindaráðstefna Háskóla Íslands, verður haldin af félags-og mannvísindadeild, félagsráðgjafardeild, hagfræðideild, lagadeild, sálfræðideild, stjórnmálafræðideild og viðskiptafræðideild í Lögbergi, Háskólatorgi og Odda föstudaginn 30. október frá klukkan 09:00 til 17:00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

28.8.2009

Ný stjórn Rannsóknasjóđs

Menntamálaráðherra hefur skipað stjórn Rannsóknasjóðs, sbr. 4. gr. laga nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Skipunartími er sami og Vísinda- og tækniráðs 2009-2012.


Stjórnborđ

Fara á forsíđu Minni leturstćrđ Stćrri leturstćrđ Senda síđu Prenta síđu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tćkniráđ mótar opinbera stefnu í vísindum og tćkni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra