Föstudaginn 13. febrúar kynnti menntamálaráðherra úthlutun úr markáætlun Vísinda- og tækniráðs á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu.
Fleiri skýrslur og greinargerðir um evrópska rannsóknasvæðið má nálgast hér.
Út er komin skýrslan European Innovation Scoreboard 2008. Í skýrslunni er hægt að sjá stöðu Íslands í samanburði við önnur lönd í Evrópu. Athygli er vakin á því að aðferðafræðin sem notuð er í þessari skýrslu er ekki að öllu leyti sú sama og notuð hefur verið undanfarin ár og því eru niðurstöður ekki algerlega sambærilegar við niðurstöður fyrri ára. Einnig vantar upplýsingar um nokkra mikilvæga þætti fyrir Ísland (sjá töflur aftast í skýrslunni). Skýrslan er ásamt öðru efna á undirsíðu um skýrslur og greinargerðir.
Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd