Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

Kynning Rannsóknasjóðs í Ráðhúsinu föstudaginn 20. mars

17.3.2009

Í tilefni af nýrri úthlutun Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2009 verður dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 20. mars frá kl. 15:00-18:00. Kynntar verða áherslur í starfsemi sjóðsins auk þess sem haldin verður sýning á nokkrum verkefnum sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum.

Fullur salur á stefnumótunarfundi 4. mars

5.3.2009

Yfir hundrað manns mættu á kynningu og umræður um drög að nýrri vísinda- og tæknistefnu á Hótel Loftleiðum þann 4. mars. Formenn vísindanefndar og tækninefndar kynntu drögin sem síðan voru rædd í hópum og með öllum fundargestum.

Nýsköpunarþing 12. mars

2.3.2009

Nýsköpunarþing verður haldið 12. mars kl. 8:00 - 10:00 á Grand hótel. Þingið er haldið í samstarfi Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Útflutningsráðs. 

Yfirskrift þingsins í ár er Opin nýsköpun. Menntamálaráðherra ávarpar þingið.   

Á þinginu eru veitt Nýsköpunarverðlaunin, en þau voru fyrst veitt árið 1994. Meðal fyrirtækja sem hlotið hafa verðlaunin eru Íslensk erfðagreining, Bláa lónið, Vaki-DNG, Hugvit, CCP og Lyfjaþróun. Árið 2008 fékk líftæknifyrirtækið Orf Nýsköpunarverðlaunin.

Vísinda- og tæknistefna 2009 til 2012 - fundur 4. mars

2.3.2009

Miðvikudaginn 4. mars frá 14 til 17 að Hótel Loftleiðum.

I lok janúar efndu vísindanefnd og tækninefnd til opinna funda til að undirbúa nýja stefnu Vísinda- og tækniráðs. Nú boða nefndirnar til fundar þar sem fyrstu drög að nýrri stefnu verða kynnt. Markmiðið er að ræða stefnuna með hagsmunaaðilum, fá gagnrýni og ábendingar til að nota við lokaundirbúning stefnunnar.

Allir hagsmunaaðilar í vísindum, tækniþróun og nýsköpun eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á mótun nýrrar stefnu.

Vísinda- og tæknistefna 2009-2012 - opinn fundur 4. mars

2.3.2009

Miðvikudaginn 4. mars munu formenn vísindanefndar og tækninefndar kynna drög að nýrri vísinda- og tæknistefnu fyrir árin 2009 til 2012. Á fundinum gefst þátttakendum tækifæri til að gefa ráð og ábendingar, gagnrýna stefnuna og hafa áhrif á endanlega útgáfu hennar. Allir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta. Dagskrá má sjá hér.

Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd