Rannsóknaþing verður haldið 1. júlí kl. 9:00 á Grand hótel. Á þinginu verða jafnframt veitt hvatningarverðlaun Vísinda og tækniráðs. Dagskrá.
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs hefur lokið við úthlutun til nýrra verkefna fyrir árið 2009; 94 milljónum króna var úthlutað til bæði doktors- og meistaraverkefna.
Alls bárust 109 umsóknir um almennan styrk úr Rannsóknarnámssjóði að þessu sinni og voru 25 þeirra styrktar eða 22,9% (fjöldi). Sótt var um röskar 563 milljónir króna en um 94 milljónum króna var veitt eða 16,8% (upphæð). Meðalupphæð umsókna var um 5,1 milljón króna en meðalupphæð styrkja nú er rétt um 3,8 milljónir króna.
Stjórn Tækniþróunarsjóðs ákvað á fundi sínum í dag 16. júní hvaða verkefnisstjórum er boðið til samninga um stuðning. Umsóknir voru óvenju margar að þessu sinni, um þreföldun, og því hefur ákvörðun um úthlutun tekið lengri tíma en áður.
Hér er listi yfir almenn verkefni sem hlutu stuðning og hér yfir öndvegisverkefni.
Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd