Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

22.6.2010

Fréttabréf júnímánaðar komið út

Fréttabréf Rannís fyrir júní eru komið út. Nálgast má fréttabréfið hér en einnig er tilvalið að skrá sig á útsendilistann hér.

21.5.2010

Munið að skrá ykkur!

Minnum á Rannsóknaþing 2010 og afhendingu Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs fimmtudaginn 27. maí nk. Dagskráin hér. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800.

20.5.2010

Rannsóknaþing og afhending Hvatningarverðlauna 27. maí

Rannís og Vísinda- og tækniráð boða til Rannsóknaþings 2010 þann 27. maí kl. 8:30 - 11:20 á Grand Hótel Reykjavík. Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra verður í boði auk þess sem Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða afhent ungum vísindamanni. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800. 

8.4.2010

Óskað eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

Verðlaunin eru árlega veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um mikilvægt framlag í vísindastarfi. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 12. apríl nk. Verðlaunin eru tvær milljónir króna og verða afhent á Rannsóknaþingi í vor.

16.2.2010

Evrópska rannsóknasvæðið - helstu áskoranir

Vísinda- og tækniráð og Rannís boða til fundar með Anneli Pauli, aðstoðarframkvæmdastjóra rannsókna- og nýsköpunarskrifstofu ESB (DG Research) þann 19. febrúar í Þjóðmenningarhúsinu.

27.1.2010

Málþing um fjármögnun háskóla 29. janúar 2010

Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna.

25.1.2010

Stefna Vísinda- og tækniráðs 2010-2012

Vísinda- og tækniráð samþykkti nýja stefnu í vísinda- og nýsköpunarmálum á fundi sínum 18. desember 2009. Ráðið hóf undirbúning við mótun nýrrar stefnu haustið 2008 og tók mið af breyttum forsendum fyrir efnahag þjóðarinnar í vinnunni. Nýtt Vísinda- og tækniráð var skipað vorið 2009 og tók það við mótuðum tillögum frá gamla ráðinu. Nýja ráðið vann áfram með tillögurnar og samþykkti nýja stefnu á desemberfundinum.

Stefnuna má finna hér.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd