Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna.
Vísinda- og tækniráð samþykkti nýja stefnu í vísinda- og nýsköpunarmálum á fundi sínum 18. desember 2009. Ráðið hóf undirbúning við mótun nýrrar stefnu haustið 2008 og tók mið af breyttum forsendum fyrir efnahag þjóðarinnar í vinnunni. Nýtt Vísinda- og tækniráð var skipað vorið 2009 og tók það við mótuðum tillögum frá gamla ráðinu. Nýja ráðið vann áfram með tillögurnar og samþykkti nýja stefnu á desemberfundinum.
Stefnuna má finna hér.
Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd