VT fréttir
7.2.2007
59. fundur vísindanefndar
Vísindanefnd: 59. fundur 29. nóvember, 2006 kl. 14-16
Rætt var um ráðstefnu forsvarsmanna í upplýsinga- og samskiptatækni sem ESB og Finnar boðuðu til í Helsinki í nóvember.
Fjallað var um erindi frá skrifstofu NordForsk frá í júlí 2006, þar þess var farið á leit að afstaða yrði tekin til tillagna um svið sem gerð hefur verið tillaga um að njóti forgangs í samstarfi á vegum NordForsk á næstunni. Samþykkt var að formenn vísindanefndar og tækninefndar legðu fram tillögu að svari fyrir sameiginlegan fund nefndanna sem haldinn verður 6. desember nk. Rætt var um undirbúning fundar Vísinda- og tækniráðs 13. desember. Inga Þórsdóttir gerði grein fyrir skýrslu starfshóps um hollustu og heilbrigði.









