VT fréttir
18.12.2007
Menningararfurinn, menntarannsóknir og sprotafyrirtæki - ályktun Vísinda- og tækniráðs
Menntarannsóknir, menningararfurinn og nýsköpun sportafyrirtækja eru meðal áhersluatriða í ályktun Vísinda- og tækniráðs sem samþykkt var á haustfundi ráðsins 18. desember.
Innviðir, forvarnir og heilbrigði eru önnur atriði sem ályktunin hefur í forgrunni auk rannsókna á nýtingu náttúruauðlinda og framgangs skapandi greina.
Hér eru áhersluatriði ályktunarinnar:
- efla rannsóknir á menntun og kennslu til að þróa menntakerfið svo það standi betur undir sívaxandi kröfum um þekkingu, virkni, sköpunarkraft, frumkvæði og sveigjanleika
- gera nýsköpunarstarfsemi að álitlegum fjárfestingarkosti og hvetja innlenda og erlenda fjárfesta og samkeppnissjóði til að veita sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum öflugan stuðning
- efla rannsóknir á íslenskum menningararfi, handrita- og bókmenningu, tungu og samtíma-menningu samhliða þeirri áherslu sem nú er lögð á útrás og alþjóðlega ímynd landsins
- efla rannsóknir sem beinast að árangursríkum forvörnum og heilsueflingu, bættri heilsuvernd, endurhæfingu og nýjungum í heilbrigðisþjónustu, lyfjatækni og þróun matvæla
- efla rannsóknir á auðlindum lands og sjávar og hvernig nýta megi náttúrlegar auðlindir betur með sjálfbærum hætti
- efla rannsóknir á líklegum og afdrifaríkum breytingum lofts, láðs og lagar með öflugri þátttöku atvinnulífsins og fræðimanna úr fjölmörgum greinum.
- efla rannsóknir sem snúa að innviðum íslensks samfélags, sérstöðu þess og séreinkennum
- skapandi greinar þar sem nýsköpun, öflug upplýsingatækni, menningarstarfsemi, afþreying og fjárfestar mætast og ný starfsemi vex fram.
Framtíðarsýn Vísinda- og tækniráðs í heild er hér.









