Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

VT fréttir

17.2.2009

Úthlutun úr markáætlun Vísinda- og tækniráðs

Föstudaginn 13. febrúar kynnti menntamálaráðherra úthlutun úr markáætlun Vísinda- og tækniráðs á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu.

Úthlutunin markar tímamót að mörgu leyti. Aldrei áður hefur jafn stórum styrkjum verið úthlutað til einstakra verkefna, en stærsti styrkurinn er 70 milljónir á ári í 7 ár eða samtals 490 milljónir króna. Markáætlun var undirbúin af Vísinda- og tækniráði eftir viðamikla stefnumótunarvinnu árið 2007. Auglýst var eftir umsóknum á átta áherslusviðum sem stefnumótunarvinnan hafði skilað og sérstakar kröfur voru gerðar um virkt samstarf milli háskóla, stofnana og atvinnulífs og um samstarf út fyrir landsteinana. Upphaflega var auglýst eftir stuttum lýsingum á fyrirhuguðum samstarfsverkefnum og bárust alls 82 hugmyndir. Af þeim fengu 10 brautargengi og eina milljón króna hver til að vinna fullbúna umsókn.  

Menntamálaráðherra fól stjórn Rannsóknasjóðs að úthluta úr markáætlun. Allar umsóknirnar voru metnar af erlendum sérfræðingum og sérskipuðu fagráði innlendra sérfræðinga áður en stjórn sjóðsins fékk þær til meðhöndlunar.

Verkefnin sem fengu styrk eru:

Alþjóðlegur rannsóknarklasi í jarðhita
Verkefnisstjóri: Sigurður M. Garðarsson
Styrkur 2009 nemur allt að 70 millj. kr.

Vitvélasetur Íslands
Verkefnisstjóri: Kristinn R. Þórisson
Styrkur 2009 nemur allt að 55 millj. kr.

Öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikarannsóknum
Verkefnastjóri: Irma Erlingsdóttir

Styrkur 2009 allt að 35 millj. kr.

Sjá nánar á heimasíðu Rannís



Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra