Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

16.2.2010

Evrópska rannsóknasvæðið - helstu áskoranir

Vísinda- og tækniráð og Rannís boða til fundar með Anneli Pauli, aðstoðarframkvæmdastjóra rannsókna- og nýsköpunarskrifstofu ESB (DG Research) þann 19. febrúar í Þjóðmenningarhúsinu.

Anneli Pauli mun fjalla um þróun evrópska rannsóknasvæðisins, væntanlegar breytingar á rammaáætlun og þróun í átt að sameiginlegum rannsóknaætlunum Evrópulanda.

Erindið er áhugavert öllum sem vilja efla sókn í alþjóðlegar samstarfsáætlanir um rannsóknir og nýsköpun.

Vísinda- og tækniráð mun helga næsta fund sinn, þann 19. mars nk., alþjóðamálum og er heimsókn Anneli Pauli mikilvægur liður í undirbúningi fundarins.

Fundarstjóri er Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís.

Dagskrá:

10:00-10:30        Dr. Anneli Pauli: Realising the European Research Area (ERA) - Key challenges

10:30-11:30        Umræður undir stjórn Hallgríms Jónassonar.        

Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig í síðasta lagi fimmtudaginn 18. febrúar á rannis@rannis.is.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd