20.5.2010
Rannsóknaþing og afhending Hvatningarverðlauna 27. maí
Rannís og Vísinda- og tækniráð boða til Rannsóknaþings 2010 þann 27. maí kl. 8:30 - 11:20 á Grand Hótel Reykjavík. Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra verður í boði auk þess sem Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða afhent ungum vísindamanni. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800.
Yfirskrift þingsins er Byggt á styrkum stoðum og snýst um leiðarljósin sem koma fram í nýrri stefnu Vísinda- og tækniráðs, en þau eru samvinna og samnýting, gæði og ávinningur og alþjóðleg vísindi og nýsköpun. Meðal fyrirlesara eru Dr. Wendy Ewart frá the Medical Rersearch Council í Bretlandi, Guðrún Nordal formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs, Magnús Tumi Guðmundsson deildarforseti jarðvísindadeildar Háskóla Íslands, Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Stika, Jón Ólafsson deildarforseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst og Björn Þór Jónsson deildarforseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra flytur opnunarávarp og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra afhendir Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís stýrir þinginu.