VT fréttir
24.10.2011
Fréttatilkynning frá starfsnefndum vísinda- og tækniráðs, október 2011
Starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs fagna þeim mikilvæga árangri sem Háskóli Íslands hefur náð að teljast í hópi 300 bestu háskóla heims samkvæmt Times Higher Education listanum. Sá glæsilegi árangur hvílir á markvissri stefnumótun skólans, öflugu starfsfólki og því víðtæka samstarfi sem Háskóli Íslands á í rannsóknastarfi sínu við innlend og alþjóðleg fyrirtæki, rannsóknastofnanir og háskóla. Viðurkenningin er því gæðastimpill fyrir íslenskt vísindasamfélag og felur í sér enn frekari hvatningu til háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja, að leggja saman krafta sína svo að ávinningur samfélagsins verði sem mestur.
Þá bárust þær fregnir að ríkisstjórnin hygðist í tilefni af aldarafmæli skólans leggja 1500 milljónir til Háskóla Íslands fram til ársins 2014, og það markmið sett að framlög á hvern nemanda við skólann næðu meðaltali OECD ríkja árið 2016 og meðaltali Norðurlanda 2020. Fjármögnun íslenskra háskóla er í dag langt undir meðaltali OECD ríkjanna og er það því þýðingarmikil stefnumörkun að fjármögnun íslenska háskólakerfisins muni í framtíðinni standa jafnfætis helstu samanburðarlöndum. Starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs óska Háskóla Íslands til hamingju með aldarafmælið og fagna árangri hans á þessum tímamótum. Starfsnefndirnar hafa fulla trú á að uppbygging háskólastarfs sem byggir á skýrum gæðaviðmiðum muni skila sér í bættum árangri og auðugra samfélagi.









