Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

VT fréttir

18.5.2005

Freysteinn hlýtur Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs

Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur veitti viðtöku Hvatningarverðlaunum Vísinda- og tækniráð við athöfn að loknu Rannsóknaþingi á Grand Hótel. Dómnefnd fyrri verðlaunaþega valdi Freystein úr hópi tilnefndra vísindamanna. Forsætisráðherra, sem jafnframt er formaður Vísinda- og tækniráðs, afhenti verðlaunin.

Í ávarpi sínu útskýrði forsætisráðherra hvers vegna Freysteinn hlaut verðlaunin. Ávarpið birtist hér í heild.

Mér er það sönn ánægja að tilkynna niðurstöðu dómnefndar um val á handhafa hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2005. Í þetta sinn hlýtur verðlaunin dr. Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur á Norræna eldfjallasetrinu við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Freysteinn er fæddur 1966. Að loknu B.Sc. prófi í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands dvaldi hann í eitt ár við Coloradoháskóla í Boulder í Bandaríkjunum en sneri síðan aftur heim og lauk meistaraprófi frá H.Í. árið 1990. Freysteinn hélt síðan aftur til Boulder og lauk þar doktorsprófi árið 1992, einungis 26 ára að aldri. Að námi loknu varð hann sérfræðingur á Norrænu eldfjallastöðinni og forstöðumaður þar frá 1999-2004 eða allt þar til stofnunin sameinaðist Háskóla Íslands. Loks má nefna að Freysteinn hefur setið í vísindamannaráði Almannavarna ríkisins frá 1994 og síðar almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra.
Freysteinn varð ungur virkur félagi í Hjálparsveit skáta og má vera að útivistaráhugi hans hafi haft áhrif á val hans á rannsóknarviðfangsefni. Sem ungur námsmaður í Boulder tók hann þátt í athugunum á því hvort nýta mætti þá nýja tækni, GPS- mælingar, til þess að fylgjast með breytingum á yfirborði jarðar og í doktorsritgerð sinni birti hann niðurstöður mælinga á jarðskorpuhreyfingum og þróun úrvinnsluaðferða á GPS mæligögnum frá Íslandi og Afarsvæðinu í Afríku. Á þessum tíma voru vísindamenn búnir að átta sig á því að gervitungl mætti nota til að meta aflögun á yfirborði jarðar en mikil þróunarvinna var því samfara að meta óvissuþætti vegna ýmissa umhverfisáhrifa og hanna leiðréttingarforrit, reiknilíkön og nákvæmari móttökutæki til notkunar á jörðu niðri. Reynsla Freysteins úr Hjálparsveitinni kom að góðum notum í útivinnu við mælingar og leiddi hann m.a. GPS-mælileiðangur til Himalyafjalla í Tíbet árið 1991.
Meginviðfangsefni Freysteins nú er að rannsaka eðli og orsakir jarðskorpuhreyfinga á Íslandi, þ.á.m. flotjafnvægishreyfingar jarðskorpunnar vegna jöklabreytinga, fylgjast með tilfærslu bergkviku í jarðskorpunni og rannsaka fyrirboða eldgosa og hegðun eldfjalla. Hann hefur tekið þátt í að byggja upp þekkingu og aðstöðu til rannsókna á þessum sviðum hér á landi, þ.á. m. til landmælinga með GPS-gervitunglatækni. Hann hefur einnig verið leiðandi í notkun svo kallaðra bylgjuvíxlmælinga úr ratsjárgervitunglum við mat á jarðskorpuhreyfingum. Þetta eru nákvæmustu landmælingar sem völ er á og með þeim má meta jarðskorpuhreyfingar yfir stór svæði með um 5-10 millimetra nákvæmni.
Freysteinn er vel þekktur á alþjóðlegum vettvangi fyrir rannsóknir sínar á jarðskorpuhreyfingum og eldfjallavöktun. Hann hefur birt hátt á fimmta tug vísindagreina í alþjóðlegum vísindatímaritum ásamt samstarfsmönnum sínum og hafa flestar greinar hans birst í virtustu tímaritum á hans fræðasviði. Má þar nefna grein í Science 1997 og grein í Nature sama ár ásamt Magnúsi Tuma Guðmundssyni og Helga Björnssyni um eldgosið í Vatnajökli og hlaupið úr Grímsvötnum haustið 1996. Hann hefur leiðbeint fjölda styrkþega hjá Norrænu eldfjallastöðinni og nemendum í framhaldsnámi við H.Í., háskólann í Lundi og háskólann í Toulouse, Frakklandi.
Auk starfa sinna hér á landi er Freysteinn virkur í alþjóðlegu vísindasamstarfi og hefur m.a. starfað með stofnunum Sameinuðu þjóðanna, nú síðast að ráðgjöf fyrir Mannúðarmálaskrifstofuna í Súmöru vegna risajarðskjálftans og flóðbylgjunnar við Indlandshaf í desember síðastliðnum. Hann er nýkominn þaðan og það var mesta mildi að við gátum gómað hann hér í dag áður en hann hverfur úr landi aftur á vit nýrra vísindaævintýra í Frakklandi seinnipartinn.

 Ég vil nú biðja dr. Freystein Sigmundsson um að koma hér og taka við hvatningarverðlaunum Vísinda- og tækniráðs 2005.

 



Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra