VT fréttir
19.12.2005
Haustfundur Vísinda- og tækniráðs
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra setur haustfund Vísinda- og tækniráðs í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.
Ráðherrar og formenn starfsnefnda fylgja úr hlaði ályktun ráðsins sem fær afgreiðslu á fundinum. Jón Atli Benediktsson prófessor er málshefjandi umræðu um uppbyggingu þekkingarþorps á Vatnsmýrarsvæðinu og Ingileif Jónsdóttir dósent ræðir nýtingu þekkingar fyrir atvinnulíf og rannsóknir.
Í lok haustfundar mun Halldór Ásgrímsson opna nýja heimasíðu Vísinda- og tækniráðs, vt.is.









