VT fréttir
20.12.2005
Doktorsnám, sameining stofnana og Vatnsmýrin - ályktun Vt
Í ályktun Vísinda- og tækniráðs 19. desember er áhersla á að efla doktorsnám á Íslandi og er sameining opinberra rannsóknastofnana jafnframt i forgrunni. Þá hvetur ráðið til uppbyggingu þekkingarþorps í Vatnsmýrinni.
Í ályktunni er menntamálaráðherra hvattur til að vinna að stefnumótun doktorsnáms og háskólar til að móta sér skýra stefnu um rannsóknir og framhaldsnám. Áform um sameiningu stofnana eru staðfest og brýnt fyrir hagsmunaaðilum að samræma áform um uppbyggingu í Vatnsmýrinni.
Af öðrum málefnum sem ályktunin nær til má nefna Rannsóknanámssjóð, fjármögnun nýsköpunar, þekkingarsetur á landsbyggðinni, loftslagsbreytingar og norðurslóðir, heilbrigðisrannsóknir og hafrannsóknir.









