Sameiginlegir fundir Vísinda- og Tækninefndar
25.1.2007
33. samfundur
33. sameiginlegi fundur tækninefndar og vísindanefndar
miðvikudaginn 6. desember, 2006, kl. 14-17
Upplýst var að Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar, hefur verið skipuð fulltrúi Íslands í NordForsk frá og með síðustu mánaðarmótum.
Dreift var uppkasti að svarbréfi til NordForsk um áhersluvið, sem Rannís vann fyrir nefndina. Staðfest var að fundur Vísinda- og tækniráðs veður haldinn 13. des. kl. 13:30. Farið var yfir umræðuefni fundarins sem verða þrjú: Alþjóðamál, klasar og nýsköpunarmál.









