Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fundir Vísindanefndar

12.2.2007

60. fundur vísindanefndar

Vísindanefnd: 60. fundur 17. janúar, 2007 kl. 14-16
Ágúst H. Ingþórsson sagði frá vinnu við úttekt á störfum Vísinda- og tækniráðs 2003-2006. Hellen Gunnarsdóttir sagði frá samningi ráðuneytisins við HÍ, þar sem tekið er tillit til stefnu Vísinda- og tækniráðs í mörgum skilmálanna sem þar eru settir.

 Greint var frá heimsókn forstöðumanns NordForsk hingað 20. febrúar og nefndarmönnum var boðið á fund sem haldinn verður um starf NordForsk. Tillögur Rannís um tilnefningar í nefndir NOS og ESF voru samþykktar. Rætt var hvernig nefndirnar standi að því að skilgreina áherslur fyrir framtíðina. Formenn nefndanna ásamt starfsmönnum vísindaskrifstofu settu fram áætlun um vinnu við ferlið við að fá fram áherslur með s.k. framsýniathugun (foresight study). Nefndarmenn voru sammála um að nýta beri ferlið til að tengja saman umræðuefni frá fundi ráðsins í desember, t.d. klasasamstarf og alþjóðamálin, en nefndirnar vinni þau mál samhliða.



Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra