Vísinda- og tækniráð
Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka samkeppnishæfni atvinnulífsins. Vísinda- og tækniráð starfar skv. lögum nr. 2 frá árinu 2003.
Forsætisráðherra er formaður ráðsins, en þar sitja einnig fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra auk 16 fulltrúa sem eru tilnefndir í ráðið af ráðuneytum, háskólum og aðilum vinnumarkaðarins, auk þess sem forsætisráðherra getur kveðið til allt að fjóra ráðherra til setu í ráðinu.
Ráðið markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun ráðsins á hvoru sviði um sig er undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd. Vísinda- og tækniráð fundar fjórum sinnum ári.
Fréttatilkynning frá starfsnefndum vísinda- og tækniráðs, október 2011
Starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs fagna þeim mikilvæga árangri sem Háskóli Íslands hefur náð að teljast í hópi 300 bestu háskóla heims samkvæmt Times Higher Education listanum. Sjá fréttatilkynninguna í heild hér.
STEFNA VÍSINDA- OG TÆKNIRÁÐS
Vísinda- og tækniráð samþykkti nýja stefnu í vísinda- og nýsköpunarmálum á fundi sínum 18. desember 2009. Stefna Vísinda og tækniráðs 2010-2012 er birt undir heitinu Byggt á styrkum stoðum.
Stefnan byggir á þremur leiðarljósum:
- Samvinna og samnýting
- Gæði og ávinningur
- Alþjóðleg vísindi og nýsköpun
Tengiliður
Ritari Vísinda- og tækniráðs:
Friðrika Harðardóttir
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík
Sími 545 9500











