Hoppa yfir valmynd
1. júní 2024

Teikningar Tryggva Magnússonar að skjaldarmerki Íslands

Teikning eftir Tryggva Magnússon - mynd

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn sýnir í júní og ágúst kjörgripi úr safni sínu í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins. Kjörgripir júnímánaðar eru teikningar Tryggva Magnússonar af skjaldarmerki Íslands.

Í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns eru varðveittar skissur að skjaldarmerki Íslands eftir Tryggva Magnússon. Tryggvi gerði fjölmargar skissur að skjaldarmerkinu uns það fékk sitt endanlega form. Þegar leið að endurreisn lýðveldisins 1944, fól Björn Þórðarson forsætisráð¬herra þremur ráðuneytisstjórum; Vigfúsi Einarssyni, Agnari Kl. Jónssyni og Birgi Thorlacius, ásamt Matthíasi Þórðarsyni þjóðminjaverði, sem hafði verið ráðunautur um gerð skjaldarmerkisins 1919 að láta gera breytt skjaldarmerki. Matthías Þórðarson hafði milligöngu um að fá marga helstu myndlistarmenn þjóðarinnar til þess að gera tillögur að nýju skjaldarmerki, svokölluðu lýðveldismerki. Fór svo að teikning Tryggva Magnússonar var samþykkt og opinberuð á ríkisráðsfundi 17. júní 1944 sem skjaldarmerki lýðveldisins Íslands. Kórónan var felld í burtu af merkinu og lögun skjaldarins breytt. Skjaldberarnir voru teiknaðir með öðrum hætti en áður og einnig undirstaðan, sem skjöldurinn hvíldi á. Við gerð undirstöðunnar hafði Tryggva í huga „kirkjugólfið” á Kirkjubæjarklaustri.

Teikningar Tryggva að skjaldarmerkinu verða til sýnis í safninu í júní og fram í ágústbyrjun og verða jafnframt kjörgripir safnsins frá 1. júní og út júnímánuð.

Staður: Landsbókasafn Ísland – Háskólabókasafn, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík
Tími: 1. -30. júní 2024

Vefur Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum