Sjóðir
Rannsóknasjóður
Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi á öllum sviðum vísinda. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Ákvörðun um styrkveitingu skal bundin hinu faglega mati. Rannís annast umsýslu sjóðsins. Nánar hér.
Tækniþróunarsjóður
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra. Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. Iðnaðarráðherra getur kveðið nánar á um starfsemi Tækniþróunarsjóðs í reglugerð. Varsla sjóðsins, umsýsla og rekstur hans er hjá Rannís, samkvæmt samningi við iðnaðarráðherra. Nánar hér.
Tækjasjóður
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði vegna rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði skal taka mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs.
Fagráð skipað formönnum fagráða Rannsóknasjóðs metur umsóknir í Tækjasjóð áður en stjórn sjóðsins tekur þær til afgreiðslu. Ákvörðun stjórnar um úthlutun er endanleg. Rannís annast umsýslu Tækjasjóðs. Nánar hér.
Rannsóknarnámsjóður
Hlutverk Rannsóknarnámssjóðs er að veita styrki til rannsóknatengds framhaldsnáms á grundvelli reglna sem menntamálaráðherra setur. Sjóðurinn veitir efnilegum nemendum sem lokið hafa tilskyldu grunnnámi í háskóla styrki til meistara- eða doktorsnáms. Rannís hefur umsjón með sjóðnum. Nánar hér.









