Slóð:

Sjóðir » Rannsóknasjóður

Rannsóknasjóður

Rannsóknasjóður er opinn samkeppnissjóður sem veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna.

Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn nemendur í rannsóknatengdu framhaldsnámi og skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja.

Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Ákvörðun um styrkveitingu skal bundin hinu faglega mati.

Með hugtakinu vísindarannsóknum er átt við allar tegundir rannsókna; grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir.

Stofna verður umsóknir í rafrænu umsóknakerfi Rannís fyrir kl. 17:00 4. júní 2013 og ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir kl. 00:00.

Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér rækilega reglur sjóðsins en þær hafa tekið nokkrum breytingum frá styrkárinu 2013.

Rannsóknanámssjóður sameinaðist Rannsóknasjóði um síðustu áramót, og er útfærsla styrkja til doktorsnema nú til umfjöllunar hjá stjórninni. 

Minnt er á doktorsnemar eru þátttakendur í langflestum verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir, og hefur stór hluti fjármagns úr Rannsóknasjóði farið til doktorsnema undanfarin ár.

Umsóknarkerfi (aðgangur með veflykli)

Umsóknarkerfi (aðgangur með lykilorði frá Rannís) Athugið að um einnota vefslóð er að ræða og verður að sækja nýja fyrir hverja innskráningu.

Hér má nálgast sniðmát fyrir umsóknargögn.

Við mælum með að umsækjendur noti Firefox eða Chrome vafra við umsóknargerð.


Rannsóknasjóður

Starfsmenn sjóðsins

Eiríkur Stephensen
sérfræðingur
515 5819

Guðlaug Þóra Kristjánsdóttir
sérfræðingur
515 5818

Hulda Proppé
sérfræðingur
515 5825

Ragnhildur I. Guðmundsdóttir
verkefnastjóri
515 5815

Sigurður Björnsson
sviðsstjóri
515 5801

Svandís Sigvaldadóttir
verkefnastjóri
 515 5817

 

 

 

  • Rannís