Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöðvar Íslands. - Fara á forsíðu

Vísinda- og tækniráð samþykkti vísinda- og tæknistefnu til ársins 2009 á fundi sínum 1. júní 2006.

Í vísinda- og tæknistefnu 2006 - 2009 er undirstrikuð staða Íslands í alþjóðlegu samhengi og sjónum beint að því að tryggja heildarsamhengi og gæði menntunar og rannsókna hjá stofnunum, fyrirtækjum og háskólum.

Í framtíðarsýn ráðsins segir m.a.: "Lykill að árangri er sýn til framtíðar og dugmikið, velmenntað fólk sem metur og hagnýtir tækifæri sem gefast við hraðfara tækni-, þjóðfélags - og markaðslegar breytingar. Skipuleggja þarf samræmda sókn ríkis og atvinnulífs er hafi það markmið að Ísland verði meðal fremstu þjóða í árangri í vísindalegum og tæknilegum framförum og þar verði öflugt, auðugt og skilvirkt atvinnulíf."

Vísinda- og tækniráð leggur höfuðáherslu á að:

  • byggja upp mennta- og vísindakerfi sem er í fremstu röð meðal þjóða, starfar í nánum tengslum við atvinnulíf og getur brugðist við hraðfara breytingum og leitt þær
  • efla opinbera samkeppnissjóði og sameina þá innan skyldra sviða
  • hvetja fyrirtæki og ríkið til að taka saman höndum um sókn í rannsóknum og þróunarstarfi til að ná betri árangri í arðbærri nýsköpun og alþjóðlegri samkeppnishæfni á grundvelli þekkingar
  • endurskilgreina hlutverk ríkisins í stuðningi við vöktun og rannsóknir í þágu almannaheilla, umhverfisverndar og efnahagsframfara með aukinn árangur að leiðarljósi

Á fundi ráðsins var einnig rætt hvernig varðveita ætti til frambúðar og hafa aðgengileg rannsóknargögn sem aflast fyrir opinbert fé og verða sífellt verðmætari eftir því sem þau ná yfir lengri tíma og verða víðtækari. Þar verður til nýr þjóðarauður sem ekki má glatast eða einangrast vegna gildist hans fyrir framtíðina.

Á fundi Vísinda- og tækniráðs var starfsnefndum þess falið að leggja fram aðgerðaráætlun til að ná framangreindum markmiðum og er gert ráð fyrir að hún verði lögð fyrir haustfund ráðsins.

Sjá stefnuna í heild hér (pdf-skjal).

.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsPrenta þessa síðuVeftréSenda þessa síðuHamur fyrir sjónskertaMinnka leturStækka leturLeit

Auglýsingar

Rannis Logo
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra

Stefna

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd